Já sæll..........

.........eigum við að ræða það eitthvað eða??? Cool

Ég er ótrúlega heppin stelpa, ég á heilbrigð, þokkalega vel upp alin og skemmtileg börn og hundurinn er alveg ágætur líkaWink svo er ég umvafin vinum og ættingjum og það er ótrúlega notalegtInLove það er svo gott að búa í sveitinni og stelpurnar eru alveg að brillera í skólanum og félagslífinu, Lillan mín (sem er orðin sex ára) er með góða sexára gelgju og stundum á ég hrikalega erfitt með mig þegar ég er að reyna að ala hana upp, hún er bara fyndin stundumGrin miðjan mín er kát og glöð og alltaf að leika og stóran mín er hægt og hljótt að skríða á unglingsárin og við erum ekki sammála um það hvenar hún eigi að fara að sofa á kvöldin en allt hefst þetta einhvern vegin og ég held að ég hafi bara staðið mig ágætlega í uppeldinu og stefni á að halda því áfram Whistling þau eru dásamleg þessi börn þó að þau séu stundum óþekkWink og stundum þarf maður að staldra við og minna sig á þetta, eða það er allavega þannig hjá mér, þó að ég sé nú ekki mjög langt frá því að vera fullkominLoL

Ég er frekar "bloggandlaus" núna og læt þetta því bara duga í þetta sinnSideways

ABB


Þannig er nú mál með vexti.......

.......að ég er á lífi og við hesta heilsuCool

En ekki í blogg stuði eins og er en það kemur færsla innan tíðarWink

Elskiði friðinn og allt það!!!

ABB


Það koma að því........

.............að ég fari með með kallinum í sólarlandaferðCool

Já við erum að fara af stað til Marmaris á tyrklandi, við förum hálfa leið í kvöld eða til Keflavíkur og þá er sko stutt til útlandaWink Stelpurnar komnar í fóstur og allt að verða klárt, mín búin að fara á snyrtistofu og láta tæta af sér hárin á fótleggjunun og p...hárin í náranum og lita og plokka og svo er hárið næst á dagskrá og þá verð ég nú aldeilis tilbúin að fara með ástarpungnum í útlöndInLove Þið bara hafið það gott á klakanum meðan við dinglum okkur í sól og hita og drekkum kokteila og bjór, ferða sagan kemur svo þegar ég er flutt í betra húsnæði í víkinni og komin með net sambandTounge

En þangað til veriði góð hvert við annað og elskiði friðinnHappy


Þá er komið að því.......

........að lillan mín fari í skólannWink

Hvar endar þetta eiginlega, börnin stækka alltof hratt og maður verður farin að ferma áður en maður veit af......... er það ekki Solla mín??? Halo 

En það er búið að vera nóg að gera hjá okkur, ég náði að dobbla kallinn með mér í hestaferð inní Þórsmörk og það var rosa gaman. Við vorum bæði að koma þangað í fyrsta skiptið og mér finnst þetta mjög flottur staður. Að vísu var ég ekkert spennt að keyra yfir Krossána en það hafðist alltsaman og svo á laugardeginum var farinn reiðtúr um mörkina og þar á meðal yfir ána og þá leist mér ekki á blikuna en allt fór þetta vel og var mjög skemmtilegt.Cool Svo voru Blómstrandi dagar í Hveró um helgina og við fengum góða gesti í heimsókn, báðar Sollurnar komu í heimsókn, önnur með kallinn og krakkana hin bara með krakkana þar sem kallinn hennar er ekki á landinuTounge svo var Gylfi í húsbíl úti í garði og það var bara stuð hjá okkur, ég var meira að segja svo heppin að kallinn minn komst heim í smá frí um helginaWink

Svo er það aðal málið, við erum semsagt að fara að flytja í Vík í Mýrdal um mánaðarmótin, við byrjum á að fara í Engigarð og svo erum við búin að fá leigt lítið gamalt hús og ætlum að vera þar í vetur og gá hvort að það sé jafn yndislegt að vera þarna á veturna eins og sumrinSmile

En nú er ég orðin í vandræðum með að halda mér vakandi og ætla að hætta þessu í biliSleeping þangað til næst. ........góðar stundir allir sem einn Wink

ABB

 


Komiði nú öll sæl og blessuð.......

........tölum um ........Whistling

Já húsmæðraorlofið var bara frábært og rétt rúmlega það Cool

Við, sko ég og Solla systir vorum komnar í garðinn fræga um klukkan 23 að staðartíma á föstudagskvöldi að staðarkvöldi og ætluðum nú heldur betur að vera slakar og gera mest lítið. Ákváðum nú samt að fá okkur tvo sopa af ópal skoti settum svo bjórinn í ísskápinn og kíktum "aðeins" til Óla frænda og hann hellti bara í okkur bjór eins og hann fengi borgað fyrir það og við bara urðum að drekka bjórinn, við gátum nú ekki farið að vera bara dónar og segja nei takk, það bara gengur ekki að særa svona ljúfa drengiHalo Stjáni var hjá óla þegar við komum þangað og eftir þó nokkra bjóra og mikið fjör bauð Stjáni okkur í heimsókn að hlusta á Stjórnina og hann hellti líka í okkur bjór og við náttlega kurteisin uppmáluð og drukkum eins og svínSideways svo um klukkan fimm um morguninn skröltum við heim með viðkomu á einu skilti með smá falli og mari og rörinu yfir Víkurána með örlítilli bleytu á öðrum fætinum og brjálæðislega miklum hlátriLoL við komumst svo loks á áfanga stað og þá þurfti náttlega að fá sér að borða og það var eitthvað voðalega fyndið við það og svo áttum við líka eftir að búa um okkur og það var eitthvað alveg hrikalega fyndið við það líka en á endanum komumst við nú inní draumaheiminn og kúrðum fram að hádegi á laugardeginum enda ekkert annað að gera í rigninguni.  svo var nú farið á stjá í búðarráp í Víkinni og fá sér að borða svo lágum við bara í leti og horfðum á Stellu í orlofi og hún klikkar nú aldreiWink Kolla bauð okkur svo í dýrindis veislu og svo var bara byrjað að vökva lífsblómið aftur, það komu nokkrar hressar stelpur til kollu fyrir ball og það var spjallað, farið í drykkjuleiki og mikið hlegiðLoL Loks var nú komið að því að fara á vit Veðurguðanna og það var alveg geggjað, fullt af fólki og brjálað stuð allt ballið og rúmlega það, garðurinn frægi var eins og umferðarmiðstöð eftir ball fólk var að koma og fara til klukkan sjö um morguninn þá skellti ég í lás og fór að sofaSleeping það voru þreyttar en alsælar húsmæður sem kvöddu Víkina seinnipartin á sunnudeginum og það var sko hlegið fyrir allan peninginnGrin Börnin mín voru náttlega alveg til fyrirmyndar hjá ömmu á patró og pabba sínum svona eins og við er að búast þegar ég er ekki nálægtWoundering en það er bara gott málSmile Ég fó svo á patró á mánudagsmorgninum, fór að heiman klukkan sex um morguninn til að ná ferjuni í Stykkishólmi og ég skal nú viðurkenna það að ég var frekar tussulegGetLost enda rétt rúmlega 25 hehe!

Svo er ég búin að vera á patró með stelpurnar og kallinn og við erum búin að hafa það hrikalega gott, fórum í Munaðarnes helgina 18 til 20 júlí að fagna 35 ára afmæli hjá Lilju mágkonu og 60 ára afmæli hjá tengdapabba og það var alveg hrikalega næs, geggjað veður og skemmtilegt fólk Wink

Núna er ég sko heima hjá mér og það verður bara að koma í ljós hvað ég tolli lengi þar, það verður frekar skrítin verslunarmannahelgin í ár þar sem að hinn helmingurinn af fjölskyldunni er úti á Lancarote (eða hvernig sem það er nú skrifað) en við höfum sko verið saman um þessa helgi í MÖRG ár!!! en við finnum eitthvað út úr því, kallinn kemur vonandi heim á fimmtudaginn og við erum svo heppin að eiga vini sem nenna að vera með okkurWink en mig drullu langar til eyja á sunnudeginum og koma svo heim á mánudagsmorgninum en var að heyra að það ætti að kosta 6 þúsundkrónur inní dalinn bara fyrir sunnudagskvöldið og ég er að spá í að láta ekki taka mig íða ósmurt takk fyrir!!! Devil þetta er náttlega bara klikkun og ekkert annaðAngry En við látum það nú ekki á okkur fá!!!

Nú ætla ég að hætta þessu bloggbulli og bara fara að gera eitthvað annaðSmile 

Látið ykkur líða vel og gangið hægt um gleðinnar dyr um næstu helgi en munið samt að skemmta ykkur og njóta þess, góðar stundir nærog fjærWizard

ABB


Og þá er komið að því...........

..............að fara í smá húsmæðraorlof Cool

Jamm og já, ég er akkúrat núna vestur á Patreksfirði hjá tengdó og kallinum, mínum sem er búin að vera á hótel mömmu í allt sumar Wink Þeir eru búnir að vera hérna þrír í fæði og húsnæði á meðan þeir eru að vinna. Svo kom Ásta með sínum manni og strákarnir þeirra og ég með mínar og eina auka dömu svo að það er búið að vera mikið fjör og nóg að gera og nóg af fólki, sjö fullorðnir og sex börn!!! Krakkarnir eru rosa dugleg að vera úti að leika og hafa alltaf einhvern til að leika við, svo er búið að fara í sund og "gulu fjöru" en það er sko gegjuð fjara hérna hinumegin við fjrðin og hún er alveg eins og í útlöndum bara gulur skeljasandur, og hjá mínum stelpum er þessi fjara alltaf kölluð gula fjara þó að allar fjörurnar hérna séu gular Smile 

En á morgun ætla ég að leggja land undir fót og fara suður, byrja í kef skila Hildi og tek Sollu í staðin svo er ferðinni heitið í Hveró, aðeins að kíkja heim og sækja dót svo sjáum við bara til hvort að við gistum þar eða förum austur í Vík en þangað er ferðinni heitið í stelpufjör og ball og það verður BARA gaman eins og alltaf þegar við stelpurnar hittumst Grin ætli ég bruni svo ekki í Hveró á sunnudaginn og á patró á mánudaginn og svo kemur bara í ljós hvernig framhaldið verður, fer soldið eftir ástkæra eiginmanninum og vinnuni hans Wink

Ætli ég láti þetta ekki gott heita í bili, kem kannski með djammfærslu eftir helgi ef það verður eitthvað birtingarhæftLoL

En þangað til næst, elskiði friðinn og strjúkiði kviðinn og kvittiðiGrin

 


Og nú er ég orðin.........

............alvöru hestamaður LoL

Já það er margt búið að brasa skemmtilegt í sveitinni og tíminn barasta flaug áfram. Við stelpurnar fórum allar í reiðskólann og skemmtum okkur mjög svo vel, þær með sínum vinkonum og ég með mínum vinkonum. Svo kom að kappreiðum og við vinkonurnar fréttum að það væri alltaf farinn mjög svo skemmtilegur reiðtúr á föstud.kvöldi og við vorum nú alveg með það á hreinu að við mættum ekki með nokkru móti missa af því og fórum þá að leita okkur að góðum reiðskjótum. Þessi reiðtúr varð ekki mjög fjölmennur en góður var hann Wink það voru náttlega aðal skutlurnar Solla, Kolla og ég og svo voru það gæjarnir Atli kollu bróðir, Orri vinur hans og Jói vinur vors og blóma Joyful Jói og Lára lánuðu okkur Sollu merar og Linda Hundakona lánaði Kollu hest og svo var haldið af stað. Við Solla vorum nú aðeins búnar að væta kverkarnar og vorum bara kátar og til í allt og Kolla var líka til í allt með þurrar kverkar Grin Veðrið var hrikalega gott og við fórum rúnt um sveitina, stoppuðum af og til til að opna og loka hliðum og svo var náttlega aðeins skvett í sig annað veifið og það þurfti líka að finna ágætis skurðbakka til að skvetta úr skjóðu Wink Allt gekk þetta nú bara vel hjá okkur og svo var farið í gegnum enn eitt hliðið og þá sögðu gæjarnir að við þyrftum að fara gætilega því að það væri graðhestur í þessu túni og við náttlega ljóskur dauðans sögðum bara "jájá" og svo var haldið af stað og sumir riðu hægar en aðrir og þegar við mættum svo folanum þá vorum við stelpurnar og Orri á svipuðum slóðum en Jói og Atli bara í sínum heimi langt á eftir að tala saman eins og verstu kjaftakerlingar Blush  Folinn varð náttlega rosa áhugasamur en samt eitthvað ekki sáttur og allt fór á fullt, hann lét öllum illum látum og reyndi að sparka í mig og aumingja Slaufu sem var nú furðu róleg en okkur stelpunum var nú alveg hætt að lítast á blikuna. Þá kom Orri (ekki á hvíta hestinum) og rak folagreyið í burtu og Kolla var svo snögg af baki til að opna hliðið að engispretta hefði skammst sínGrin Við vorum hrikalega fegnar þegar Kolla var búin að loka hliðinu afturUndecided En svo var haldið áfram og við þurftum ekki að kæra fyrir nauðgun, þetta slapp fyrir horn og á hann Orri sinn heiður í því!!! Við enduðum svo reiðtúrinn á að taka nokkra hringi á kappreiðvellinum, þar var verið að prófa hljóðgræjurnar og voru Hrossin mis ánægð með það, merin sem Solla var á var ekki hress með þetta svo að Solla fór af baki og stóð hjá henni og talaði blíðlega við han og reyndi að róa hana en merarskömmin kunni ekki gott að meta og sparkaði í Sollu Angry bölvuð!!! En við Slaufa fórum hring eftir hring og Atli og Jói líka, Kolla var farin heim með mjólkurbúið og Orri fór heim til að mæta svo sprækur á kappreiðar, við riðum svo í takt við tónlistina og fórum náttlega í ekta kappreiðar og svo gerðist það að við Slaufa vorum í góðum fílíng (alla vega ég Cool) i takt við tónlistina og þá var skipt um lag og við mistum taktinn og ég rann af baki á sama tíma og Slaufa stoppaði þannig að fallið varð ekki neitt og ég ógó montin orðin alvöru hestamaður og skellti mér á bak afturHappy Svo var nú farið í Víkina og haldið áfram að djamma til rúmlega fjögur þá var nú löngu kominn tími á að koma sér í bælið W00t Og nú er hestabakterían komin til að veraWink

Jæja þá í þetta sinn, ég ætla að hætta í bili ég varð bara að koma þessum frábæra reiðtúr í loftið. Svo er stefnan tekin á helgarhestaferð í ágúst og þá ætla ég að reyna að fá kallinn meðSmile

En þangað til næst........góðar stundirHeart


Og það skalf.......

..........þokkalegaErrm

En við sluppum bara vel fyrir utan smá taugaáfall hjá stelpunum en þær eru allar að koma til. Við erum í sveitinni á reiðnámskeiði núna og erum bara í góðum gír og ætlum okkur að vera hérna eitthvað áframWink

Við erum í bústaðnum okkar í Víkinni og erum ekki með net eða sjónvarp og það kvartar engin yfir því, ég er nokkuð ánægð með það. Ég tók nú tölvuna með og stundum fá þær að horfa á DVD ef það rignir mikið sem gerist nú stundum í Víkinni Tounge Guðrún Lilja og Sigurjóna eru á reiðnámskeiði klukkan hálf tíu, Birna Sólveig er klukkan tvö, Guðrún Ósk (baranapían) er klukkan átta og ég er klukkan korter í tíu þannig að dagarnir fara í þetta og það er ekki leiðinlegt. Svo verður sýning á sunnudaginn og þá er þetta búið, mér finnst samt eins og mér veitti ekkert af annari vikuWhistling en annars gengur þetta bara fínt hjá okkur öllum og það er heill hellingur af frænkum og frændum á reiðnámskeiðinu sem er bara gamanWink

En þetta verður ekki lengra í bili, ég er að fara að gæða mér á hrikalega flottum og góðum pönnsum hjá Kollu (fékk líka að far á netið hjá henni) svo kemur það bara í ljós hvenar næsta færsla dettur innHappy

En þangað til, hafið það sem best og njótið lífsins í botnKissing

ABB


Og þau komust áfram.......

.......í Eurovision Cool

Mér fannst þau bara standa sig vel á sviðinu í Serbíu og alveg eiga það skilið að komast áfram og fyrst VIÐ erum komin áfram þá er náttlega tilvalið að ger sér glatt kvöld á laugard,kvöldið og horfa á keppnina Whistling 

Ætla nú reyndar að skella mér í 60 afmæli á föstud,kvöldið hjá Ögmundi bróður hennar mömmu þannig að það er nóg að gera. það er eins og allt komi alltaf upp á sama tíma, ég setti stelpurnar í pössun um síðustu helgi og svo aftur um þessa helgi og ætlaði að reyna að fara á Patró um næstu helgi í sjómannafjörið en það gengur ekki upp barnapíulega séð þannig að Kristófer veður bara heima hjá okkur í staðin enda kanski komið nóg af þvælingi hjá stelpuskottunum. Ekki það að þeim finnist leiðinlegt að fara og gista, þetta er bara einhver móðursíki í mér Blush

Kristófer er semsagt farinn á patró að vinna hann fékk verkefni þar ásamt öðrum og verður þar væntanlega megnið af sumrinu. En hann kemur heim á þriðjudagskvöldið því að það er taka 2 í húsamálinu mínu fræga og nú verður kallinum ekki gefin kostur á neinum samningum, þetta skal fyrir dóm og ekkert KJAFTÆÐI Angry ég er sko orðin verulega þreytt á þessu ógeði Crying En ég segi það enn og aftur.......þetta fer ekki ver en illa!!!

Svo ætla ég bara að skella mér í víkina og fara með stelpurnar á reiðnámskeið og ég ætla líka að fara á námskeið svona mér til gagns og gamans af því að ég ætla nú að verða hestakona þegar ég verð stór Wink ætli ég verði svo ekki bara meira og minna í vík í sumar með stelpuskotturnar, ég held að við höfum bara gott og gaman af því að breyta til og skipta um umhverfi Smile en þá verður nú frekar lítið um bloggfærslur, bústaðurinn okkar er ekki mjög tæknivæddur frekar en ég Tounge

Ég skellti mér í skólaferðalag með Guðrúnu Lilju í morgun (ákvað að drýfa mig með á meðan hún vill hafa mig með) við fórum útí Viðey og skoðuðum okkur um þar og borðuðum nesti, svo var farið í fjöruna áður en við fórum heim. Get nú ekki sagt að veðrið hafi verið dásamlegt en það var alla vega þurt og þá er maður nú bara nokkuð sáttur, ferðin gekk bara vel og allir skemmtu sér frábærlegaWink Svo er fjöruferð með Sigurjónu bekk á þriðjudaginn og ég ætla náttlega að skella mér með í hana líka Smile

Jæja, það er komin tími til að kíkja í blessaðann koddann og hvíla augun fyrir morgundaginn, það þarf víst að ræsa liðið í skólann enþá en það styttist nú í skólaslit og mikið verð ég fegin að fá pásu á nestisgerð,heimalærdómi og skutli hingað og þangað.

Kveð að sinni, góða helgi Kissing

ABB


Nú er úti veður vont.........

............Eða ekki Cool

Mín ákvað að færa sig um set og prófa eitthvað nýtt, afhverju??? jú þannig er nú mál með vexti að mín keypti sér fartölvu í gær, ég er alveg búin að fá nóg af stóra skrímslinu sem tekur hálft holið hjá mér og hefur svo hátt að stundum er maður ekki viss hvort maður er að ryksuga eða í tölvuni fyr en maður fer að hnerra af öllu rykinu sem skrímslið safnar að sér Crying Svo ákvað ég bara að skella mér á eina litla sæta tölvu sem er bara handa mér og skella mér á nýja bloggsíðu í leiðinni Happy

 Ég held að ég sé á einhverju "breytingaskeiði" núna, ég ákvað að vera dugleg svona einu sinni á þriðjudaginn og skúraði og bónaði gólfin hjá mér og þá þurfti ég náttlega að færa til öll húsgögnin og ekkert af þeim fór aftur á sinn stað Joyful En þetta er alveg ágætt svona og fínt að fá smá tilbreytingu í kofann!!!

Annars er bara allt gott að frétta, kallinn minn er farinn á Patró að vinna þannig að ég er pínu vængbrotin en þetta er bara tímabundið og það verður bara gaman að fá hann heim aftur. Stelpurnar eru eldsprækar og bara eins og þær eiga að sér að vera, sem sagt hlæja, gráta, brosa, tuða, stríða, öskra, nöldra, grínast, slást, rífast, leika, dansa, syngja og eru alveg yndislegar Heart Ég ætla að skella mér með þær í vík á reiðnámskeið í byrjun júní, við fórum í fyrra og það var ógó gaman en núna ætla ég að reyna að fara líka,ég ætla sko að verða hestakona þegar ég verð stór Smile Ég er rosa ánægð að vera búin að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór, þetta er búið að hvíla lengi á mér LoL svo er bara að vona að takmarkinu verði náð!!!

En jæja, ekki þýðir að sökkva sér algjörlega í tölvuskríflið, ég efast um að döurnar verði saddar og sælar af því Errm best að standa sig og fara að gefa á garðann!!!

Góða helgi og njótiði lífsins!

ABB.

 


Höfundur

Anna Birna
Anna Birna
Heimavinnandi húsmóðir í blóma lífsins!!!

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 0
  • Sl. viku: 0
  • Frá upphafi: 2907

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 0
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband